Skip to content

Samráð um samgöngur

Þegar þáverandi umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, staðfesti 1. útgáfu stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs árið 2011, óskaði hún eftir því við þáverandi stjórn þjóðgarðsins að frekara samráð yrði haft um samgöngumál. Stjórninni var ljúft að verða við þessum tilmælum og lagði áherslu á að samráðið færi fram á vandaðan og skipulegan hátt, í góðri sátt þeirra hagsmunaaðila sem málið varðaði.

Fyrsta skrefið í samráðsferlinu fólst í greiningu hagsmunaaðilanna og gerð samráðsáætlunar. Stjórnin taldi mikilvægt að hvort tveggja væri kynnt fyrir helstu hagsmunaaðilum og þeim gefinn kostur á að bregðast við. Markmiðið var að tryggja að aðilar séu sammála um að samráðsferlið sé líklegt til að draga fram öll helstu rök og sjónarmið. Stjórnin gerði sér grein fyrir því að niðurstaðan kynni að gefa tilefni til breytinga á stjórnunar- og verndaráætlun, bæði hvað varðaði almenna stefnu og einstakar leiðir.

Hér eru birt gögn um fyrirkomulag þessa samráðs, þ.e. greining á hagsmunaaðilum og samráðsáætlun. Hagsmunaaðilum var boðið að senda einn fulltrúa á sérstakan kynningarfund um það fyrirkomulag samráðsins sem hér er lýst eða senda athugasemdir í tölvupósti.

Yfirlit yfir samráðsferlið og gögn

Skýrsla starfshóps - 2. desember 2011

Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði skilaði inn niðurstöðum sínum vegna samráðs þann 2. desember 2011.

Fundargerðir starfshóps frá 31.10.2022, 14.11.2011 og 21.22.2011

27. nóvember 2011: Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði fundaði 31. október, 14. nóvember og 21. nóvember 2011.

Fundargerðir starfshóps frá 3.10.2011 og 10.10.2011.

25. október 2011: Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði fundaði 3. október 2011 og aftur 10. október 2011.

Fundargerð starfshóps frá 26.9.2011

30. september 2011: Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði fundaði 26. september 2011.

Fundargerð starfshóps frá 19.9.2011

23. september 2011: Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði fundaði 19. september 2011.

Fundargerð starfshóps frá 8.6.2011

15. júní 2011: Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði fundaði þann 8. júní 2011.

Fundargerð starfshóps frá 1.6.2011

5. júní 2011: Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði fundaði þann 1. júní 2011.

Fundargerð starfshóps frá 25.5.2011

30. maí 2011: Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði fundaði þann 25. maí 2011.

Fundargerð samráðsfundar haldinn 3.5.2011

10. maí 2011: Nú er tilbúin fundargerð samráðsfundarins sem haldinn var þann 3. maí. Í fundargerðinni eru orðrétt þau svör sem vinnuhópar skráðu við spurningum sem lagðar voru upp. Leitað hefur verið til nokkurra hagsmunaaðila um tilnefningar í starfshóp sem mótar tillögur til stjórnar þjóðgarðsins. Þeir sem leitað er til hafa verið beðnir um að sammælast við aðra skylda hagsmunaaðila um tilnefningar, eftir því sem við á.

Fundarboð samráðsfundar 3.5.2011

26. apríl 2011: Hagsmunaaðilum hefur verið boðið að senda einn fulltrúa á samráðsfund sem haldinn verður þann 3. maí. Markmið samráðsfundarins er að leiða fram allar helstu röksemdir og sjónarmið varðandi samgöngur í þjóðgarðinum

Fundargerð kynningarfundar um tilhögum samráðs vegna samgangna, haldinn 13.4.2011.

18. apríl 2011: Hér fylgir með fundargerð af kynningarfundi Vatnajökulsþjóðgarðs um tilhögun samráðs vegna samgangna í Vatnajökulsþjóðgarði, sem haldinn var þann 13. apríl 2011. Á fundinn mættu 17 gestir auk fulltrúa frá Vatnajökulsþjóðgarði og nokkurra aðila sem horfðu á útsendingu af fundinum á netinu. Umræður voru fjörlegar. Tillaga að dagsetningu fyrir samráðsfundinn um aðgengi og samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði, verður kynnt nú í vikunni hér á vefnum.

15. apríl 2011:
Kynningarfundur Vatnajökulsþjóðgarðs um tilhögun samráðs vegna samgangna í Vatnajökulsþjóðgarði var haldinn þann 13. apríl frá 17-18:30 á skrifstofu Alta í Ármúla 32, Reykjavík. Á fundinn mættu 17 gestir auk fulltrúa frá Vatnajökulsþjóðgarði og nokkurra aðila sem horfðu á útsendingu af fundinum á netinu. Umræður voru fjörlegar. Fundargerð eftir fundinn mun birtast hér á vefnum á mánudaginn kemur. Tillaga að dagsetningu fyrir samráðsfundinn um aðgengi og samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði, verður einnig lögð fram í byrjun næstu viku.