Beint í efni

Auglýst er eftir umsóknum um rekstur veitingavagna við Jökulsárlón

Vatnajökulsþjóðgarður, kt. 441007-0940, auglýsir eftir umsóknum frá rekstraraðilum sem óska eftir að starfrækja veitingavagna við Jökulsárlón tímabilið 1. júní 2024– 31. maí 2026, með möguleika á framlengingu til eins árs.

9. febrúar 2024

Samkvæmt 1. mgr. 15. gr. laga nr. 60/2007 um Vatnajökulsþjóðgarð er óheimilt að reka atvinnutengda starfsemi í þjóðgarðinum án samnings um slíka starfsemi við Vatnajökuls­þjóðgarð. Vatnajökulsþjóðgarður mun gera samninga við þrjá aðila, nema færri en þrjú gild tilboð berist í auglýsingarferlinu. Um er að ræða rekstrarleyfissamninga samkvæmt lögum nr. 100/2021, um nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni, sbr. 2. mgr. 15. gr. a laga nr. 60/2007 um Vatnajökulsþjóðgarð.

Skilyrði sem rekstraraðilar þurfa að uppfylla og sýna fram á í umsóknargögnum eru eftirfarandi:

  • Hafa reynslu af rekstri veitingavagns eða veitingastaðar.
  • Gert er ráð fyrir heilsárs starfsemi.
  • Hafa gild starfsleyfi frá viðeigandi heilbrigðiseftirliti (nægjanlegt er að starfsleyfis hafi verið aflað fyrir 1. júní 2024).
  • Hafa sett sér umhverfis- og sjálfbærnistefnu sem inniheldur markmið um að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar og tryggja að náttúra þjóðgarðsins verði ekki fyrir skemmdum af völdum starfseminnar.
  • Vera með skriflegar öryggisáætlanir sem ná yfir reksturinn og skulu þær vera í samræmi við eðli starfseminnar og tryggja að öryggi gesta sé fullnægjandi.
  • Veitingavagninn þarf að vera opinn minnst 300 daga yfir árið.
  • Veitingavagninn má vera allt að 8 metra langur og þarf að vera hægt að fjarlægja/færa hann með stuttum fyrirvara.
  • Veitingavagninn skal vera snyrtilegur, greinilega merktur rekstraraðilanum og falla smekklega að umhverfinu.
  • Hafa skráningu í fyrirtækjaskrá sé rekstraraðili ekki einstaklingur.
  • Vera í skilum með opinber gjöld, þ.m.t. skattgreiðslur og lífeyrisskuldbindingar.
  • Tilboð verða útilokuð uppfylli þau ekki skilyrði um persónulegar aðstæður sem fram koma í lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup, sbr. 4. mgr. 21. gr. laga nr. 100/2021.
  • Rekstraraðilar þurfa sjálfir að tryggja matarvögnum sínum stöðuleyfi frá Sveitarfélaginu Hornafirði.

Fjárhagsstaða rekstraraðila skal jafnframt vera það trygg að hann geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Vatnajökulsþjóðgarði.

Vatnajökulsþjóðgarður hvetur umsækjendur til að vera með vottun Vakans eða sambærilega vottun.

Tæknileg og fagleg geta rekstraraðila skal vera það trygg að hann geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Vatnajökulsþjóðgarði.

Vatnajökulsþjóðgarður áskilur sér rétt til að meta tilboð aðila ógilt hafi hann áður vanrækt skyldur sínar gagnvart Vatnajökulsþjóðgarði í sambærilegri starfsemi.

Tilboð verða flokkuð niður eftir eðli þeirra matfanga og veitinga sem tilboðsgjafar hyggjast bjóða upp á, þannig að stuðla megi að fjölbreytni veitinga á svæðinu. Tilboðum verður tekið í samræmi við hæsta verð gildra tilboða að teknu tilliti til þess að enginn þeirra þriggja aðila sem valdir verða bjóði samskonar matseðil. Tilboðsverð skulu ekki innifela virðisaukaskatt. Komi upp sú staða að tilboð tveggja eða fleiri rekstraraðila verði jöfn verður litið til lengdar starfsreynslu tilboðsgjafa á Jökulsárlóni en að því jöfnu varpað hlutkesti. Bjóðendur skulu fylla út tilboðsblað sem er meðfylgjandi auglýsingu þessari og skal tilboð fela í sér fast mánaðargjald sem greitt er allan gildistíma samningsins. Vatnajökulsþjóðgarður vekur athygli bjóðenda á því að greiða þarf mánaðarlega 50.000 kr. fyrir aðgengi að rafmagni. Ekki verður horft til þeirrar fjárhæðar við mat á tilboðum.

Nánari upplýsingar um atvinnutengda starfsemi í Vatnajökulsþjóðgarði og verklagsreglur um afgreiðslu umsókna má nálgast á vef Vatnajökulsþjóðgarðs www.vatnajokulsthjodgardur.is. Sjá einnig www.vakinn.is. Einnig má senda fyrirspurn á póstfangið [email protected].

Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í gegnum þjónustugátt Vatnajökulsþjóðgarðs eigi síðar en 29. febrúar 2024 kl. 12:00. Tilboð verða opnuð eftir hádegi þann 29. febrúar 2024. Með undirritun á framlögðu tilboði sínu skuldbindur bjóðandi sig til að standa við tilboð sitt í 2 vikur frá opnun.

Fyrirspurnir um auglýsingarferlið skulu berast á netfangið [email protected] eigi síðar en 25. febrúar 2024.

Vatnajökulsþjóðgarður áskilur sér rétt til að vísa frá öllum umsóknum eða hafna einstökum umsóknum uppfylli þær ekki skilyrði sem tilgreind eru í auglýsingu þessari og/eða ef fullnægjandi gögn fylgja ekki umsókn, sbr. 2. mgr. 35. gr. reglugerðar um Vatnajökulsþjóðgarð. Þá er áskilinn réttur til að hætta við auglýsingarferlið á grundvelli málefnalegra ástæðna, s.s. ef engin gild tilboð berast eða ef öll tilboð eru undir væntingum um eðlilega fjárhæð m.t.t. fyrri samninga á svæðinu, sbr. 5. mgr. 23. gr. laga nr. 100/2021.