Beint í efni

Skaftafell - Framtíðarsýn

Framtíðarsýn Skaftafells var verkefni sem unnið var á árunum 2020 til 2021 með það að markmiði að skýra framtíðarsýn fyrir Skaftafell sem lykilþjónustustað á suðursvæði þjóðgarðsins.

Framtíðarsýn Skaftafells - Greinargerð sem afhent var ráðherra 30. júní 2021:

Stýrihópur starfsfólks Vatnajökulsþjóðgarðs og ráðgjafafyrirtækisins Alta leiddi vinnuna. Ráðherra umhverfis- og auðlindamála var afhent greinargerð þann 30. júní 2021 sem innihélt afrakstur gagnaöflunar og samráðs um framtíðarsýn Skaftafells. Greinargerðin verður forsenda breytinga á deiliskipulagi Skaftafells.

Vinnuferlið:

Um mitt sumar 2020 var gerður samningur við fyrirtækið Alta varðandi ráðgjöf við verkefnið. Haustið 2020 hóf stýrihópur störf. Í stýrihópnum eru frá Vatnajökulsþjóðgarði; Gunnlaugur Róbertsson, Helga Árnadóttir og Hrafnhildur Ævarsdóttir og frá Alta; Árni Geirsson og Herborg Árnadóttir. Stýrihópur byrjaði á að safna grunngögnum og upplýsingum um skipulagsmál í Skaftafelli og annað tengt svæðinu. Í kjölfarið var haldinn fundur með svæðisráði suðursvæðis þar sem farið var yfir hagsmunaaðilagreiningu. Í framhaldinu var boðað til samráðsfunda við hina ýmsu aðila ásamt því að í boði var könnun hér á vefnum. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir samráðsfundi. Að loknum samráðsfundum voru tekin saman gögn sem kynnt voru svæðisráði og stjórn þjóðgarðsins, sjá gögn hér fyrir neðan. Einnig fór stjórn í vettvangsferð í Skaftafell og fundaði með svæðisráði dagana 22.-23. mars 2021. Stjórn samþykkti á fundi þann 17.maí 2021 tillögu svæðisráðs suðursvæðis frá 94. fundi 26.4.2021, sjá útdrátt af valkostum hér fyrir neðan. Verkefnið fer nú í ferli deiliskipulags.

Útdráttur af valkostum stjórnar, samþykkt á fundi 17.5.2021:

Búseta starfsfólks:

Í Sandaseli verði lítil íbúðaþyrping sem hýsir 3-5 fjölskyldur fastra starfsmanna með heilsársbúsetu á svæðinu og 5-10 litlar íbúðir fyrir einhleypa og tímabundna starfsmenn. Aðrir starfsmenn búa á nærsvæðum.

Aðstaða einkafyrirtækja:

Í Skaftafelli verði aðstaða fyrir sölubása með samræmdu útliti sem fyrirtæki í kring geta8 nýtt sér og safnstaður fyrir ferðir (“meeting point?). Einnig starfsmannaaðstaða fyrir veru starfsmanna yfir daginn. Önnur aðstaða fyrirtækja er utan þjóðgarðs.

Framboð þjónustu:

Skaftafell verði áhugaverður viðkomu- og dvalarstaður ólíkra hópa sem vilja kynna sér náttúru svæðisins í bland við slökun og samveru með vinum og vandamönnum. Öll aðstaða sem þarf til nokkurra daga dvalar sé fyrir hendi.

Gestastofa:

Í Skaftafelli verði falleg en látlaus gestastofa, mögulega í núverandi húsi með viðbótum, með veglegri sýningu sem fjallar um sérstöðu svæðisins og setur það í stærra samhengi loftslagsbreytinga.

Þjónusta við nærsamfélag:

Helsta samfélagshlutverk þjóðgarðsins snúi að öryggi íbúa og gesta í Öræfum. Þar verði góð aðstaða fyrir viðbragðsaðila eins og björgunarsveitir, lögreglu og slökkvilið og fjöldahjálparstöð í neyð.

Húsin í heiðinni:

Með nauðsynlegum endurbótum verði Hæðir og Bölti notuð sem íbúðir fyrir starfsfólk og jafnvel bætt við nýjum íbúðarhúsum á þeim slóðum.

Yfirlit yfir samráðsfundi:

DagsetningHagsmunaðili (ar)Fjöldi
10. nóv. 2020Starfsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs í Skaftafelli11
11. nóv. 2020Viðbragðsaðilar12
12. nóv. 2020Fagstofnanir og fræðasamfélag13
17. nóv. 2020Ferðaþjónusta19
18. nóv. 2020Bæjarstjórn og umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar8
18. nóv. 2020Náttúruverndarsamtök, útivistarsamtök5
27. nóv. 2020Vegagerðin2
30. nóv. 2020Svæðisráð vestursvæðis6
8. des. 2020Starfsmenn alls Vatnajökulsþjóðgarðs19
10. des. 2020Íbúar20
Nóv-des 2020Spurningakönnun32
Janúar 2021Landeigendur - 3 fundir3
Alls150

Yfirlit yfir fundi svæðisráðs suðursvæðis og stjórnar þar sem verkefnið hefur verið tekið fyrir

DagsNefndFundarnúmerViðfangsefni
17.5.2021Stjórn159Staðfesting á valkostum svæðisráðs
26.4.2021Svæðisráð suður94Samkomulag um valkosti
23.3.2021Stjórn og svæðisráð157Vettvangsferð í Skaftafell og umræða um valkosti
10.3.2021Svæðisráð suður92Kynning á fyrirhugaðri vettvangsferð í Skaftafell
4.2.2021Svæðisráð suður91Kynning frá stýrihóp
11.1.2021Stjórn150Kynning frá stýrihóp
9.12.2020Svæðisráð suður89Upplýsingar um yfirstandandi vinnu
2.11.2020Svæðisráð suður86Stýrihópur kynnir vinnuna. Hagsmunaaðilagreining
5.10.2020Svæðisráð suður84Kynning á áætlun um skipulagsvinnuna
29.6.2020Stjórn140Kynning á áætlun um skipulagsvinnuna og samning við Alta
14.10.2019Stjórn134Stjórn tekur undir bókun svæðisráðs, vísar til framkv.stjóra og þjóðg.varðar. Kanna þarf fjármögnun
1.10.2019Svæðisráð suður72Bókun um þörf á mótun framtíðarsýnar