Beint í efni
L1

Ásbyrgi - Vesturdalur

Gangan milli Ásbyrgis og Vesturdals býður upp á göngu um svæði sem ber mörg ummerki hamfaraflóðanna sem skópu Jökulsárgjúfur sem og fjölbreyttar jarðmyndanir Rauðhóla og Hljóðakletta. Útsýni er einstakt yfir Ásbyrgi og gljúfrin og lífríki fugla og gróðurs fjölbreytt. Leiðin er fyrsti leggur gönguleiðarinnar eftir endilögum Jökulsárgljúfrum, frá Ásbyrgi að Dettifossi, alls um 32 km.
Vert er að taka fram að á leiðinni er engin lind eða lækur til að taka vatn úr og göngufólk þarf að bera með sér allt drykkjarvatn.

Frá Ásbyrgi má velja tvær leiðir til Vesturdals: Annars vegar er það leiðin eftir barmi Ásbyrgis, um Klappir og Kvíar, rúmir 12 km og er það leiðin sem sýnd er á kortum. Einnig er hægt að ganga austari leiðina, meðfram Jökulsá, en sú leið er um 13,6 km. Báðar leiðir hefjast við Gljúfrastofu í Ásbyrgi. Hægt er að fara tvær leiðir til að komast upp á barm Ásbyrgis. Auðveldari leiðin er að fara austur yfir golfvöllinn og beygja til suðurs á gatnamótum austan golfvallar, þaðan liggur leiðin upp á barminn þar sem hann er lægstur. Erfiðari leið er að fara beint í suður frá Gljúfrastofu að gatnamótum við Tófuklif, þar sem beygt er til austurs og klifrað upp vegginn með því að styðja sig við kaðal. Ekki er mælt með þessari leið ef fólk er með þungar byrðar. Við Tófuklif er síðan valið hvor leiðin er farin í Vesturdal.

Vegalengd
12 km
Áætlaður tími
4-5 klst
Erfiðleikastig
Krefjandi
Hækkun
xx m
Tegund
Önnur leið
Upphafsstaður
Við Gljúfrastofu

Ásbyrgi - Dettifoss: Tengdar gönguleiðir

L1, L2, L3

Ásbyrgi - Dettifoss

32 km ein leið
2 dagar
Krefjandi leið

Milli Ásbyrgis og Dettifoss liggur um 32 km gönguleið eftir Jökulsárgljúfrum. Fjölbreytileiki landslagsins er einstakur og andstæður í umhverfinu fanga augað við hvert fótspor: hrikaleg gljúfur, kyrrlátar tjarnir, tærar lindir, úfin jökulsá, gróskumikill skógur og grýttur melur.
Það þarf að ætla sér tvo daga í gönguna og þá er miðað við náttstað í Vesturdal. Einungis er leyft að tjalda á tjaldsvæði í Vesturdal og við Dettifoss.

L2
Jökulsárgljúfur, Hljóðaklettar, þoka,

Vesturdalur - Hólmatungur

8 km
3 klst
Krefjandi

Milli Vesturdals og Hólmatunga er gengið í nálægð Jökulsár á Fjöllum hvar víða blasa við jarðmyndanir tengdar eldgosum og hamfaraflóðum. Mörg örnefni á leiðinni bera merki um búsetu á svæðinu, sbr. Lambahellir, Kallbjarg og Myllulækur. Leiðin er um 8 km löng. Á leiðinni þarf að vaða eina á, Stallá. Stallá er lindá sem rennur út í Jökulsá. Hún er grunn og köld, en vaðið hressir aðeins þreytta fætur og gerir ferðina enn eftirminnilegri. Leiðin er annar leggur gönguleiðarinnar eftir endilögum Jökulsárgljúfrum, frá Ásbyrgi að Dettifossi, alls um 32 km.

L3

Hólmatungur - Dettifoss

8 km
3 klst
Krefjandi

Leiðin er þriðji og síðasti leggur gönguleiðarinnar eftir endilögum Jökulsárgljúfrum, frá Ásbyrgi að Dettifossi, alls um 32 km.

Jökulsárgljúfur: Kortabæklingur og kort