Beint í efni

Morsárdalur

Í Morsárdal er Bæjarstaðarskógur sem er hávaxnasti birkiskógur landsins en lítill um sig. Reyniviður vex sums staðar í skóginum og undirgróður er blómlegur. Á þessum slóðum er talið að bærinn Jökulfell hafi staðið. Hér endaði einnig landnám Þorgerðar landnámskonu en hún teymdi kvígu sína frá sólarupprás til sólarlags frá Kvíá í austri að Jökulfelli í vestri.
Innst í dalnum fellur Morsárjökull fram af þverhníptum hömrum og í hlýju veðri má oft heyra drunur og bresti langar leiðir þegar fannir og ísflikki steypast fram af hamrastálinu í háum jökulfossi

Mynd: tupungato, iStock

Gönguleiðir í Morsárdal

Bæjarstaðarskógur - M1

13 km
3 klst

Í þessari lýsingu er miðað við að farið sé á hjóli inn í Bæjarstaðarskóg.

M2

Morsárjökull

19,5 km
6-7 klst
Krefjandi

Morsárjökull er formfagur, tvískiptur skriðjökull. Neðri hluti skriðjökulsins er fóðraður af falli íss niður þverhnípta hamra þar sem einnig myndast oft fossar sem eru með þeim hæstu á landinu. Í hlýju veðri má oft heyra drunur og bresti langar leiðir þegar fannir og ísflikki steypast fram af hamrastálinu í háum jökulfossi. Ofan á jöklinum má ennþá sjá ummerki gífurlegrar bergskriðu sem féll á jökulinn árið 2007.

M3

Kjós

30 km
8-10 klst
Krefjandi

Kjós er litskrúðugur fjallasalur með um 1000 metra háum skriðu- og hamraveggjum. Á norðurbrún Kjósarinnar rís hinn sérkennilegi tindur Þumall sem talinn er vera um tveggja milljón ára gamall gígtappi. Lagskipt litskrúð ber vott um nálægð við mikla eldstöð en landslagið er dæmigert roflandslag.

Áfangastaðir