Beint í efni

Viðauki við stjórnunar- og verndaráætlun: Sandfell í Öræfum

Unnið er að gerð viðauka fyrir Sandfell í Öræfum. Það sem um ræðir er það svæði sem bættist við Vatnajökulsþjóðgarð í júní 2021.

Vinnuferli við mótun viðaukans

Gagnaöflun og samtal

Nú er unnið að mótun ákvæða fyrir stjórnunar- og verndaráætlun. Í því felst m.a. gagnaöflum og samtal við fagstofnanir, íbúa, atvinnurekendur og aðra hagsmunaaðila, um samspil á verndun og nýtingu þeirra gæða sem svæðið hefur upp á að bjóða.
Liður í þeirri vinnu eru eftirfarandi samráðsfundir um ólík þemu:

Íbúafundur - Freysnesi. 2. maí 2023 kl. 16.00-17.30

Sjónum beint að beinum hagsmunum íbúa og samfélagsins í Öræfum. Fundurinn var haldinn á Hótel Skaftafelli, 2. maí 2023 klukkan 16:00-17.30.

Fundur rekstraraðila – haldinn í Freysnesi 2. maí 2023 kl. 20-21.30

Sjónum beint að hagsmunum þeirra sem rekafyrirtæki á svæðinu. Fundurinn var haldinn á Hótel Skaftafelli, 2. maí 2023 klukkan 20.00-21.30

Fjarfundur - 10. maí kl. 13.00-15.00

Opinn fundur um málefni Sandfells óháð þema.  Fundurinn var haldinn á Teams, þriðjudaginn 10. maí, kl 13.00-15.00.

Upptaka af kynningu frá opnum fundi í maí 2023

Svæði afmarkað með gulum línum: Svæði sem bættist við Vatnajökulsþjóðgarð 2021.